I like to move it move it...
Myndir
02.09.2006 20:23:16 / sandra

nýtt blogg

Ég er búin að opna nýja bloggsíðu

http://www.sandydandy.bloggar.is


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 10:30:57 / sandra

Halla malla

Jæja þá er þessari helgi í Reykjavík að ljúka. Í tilefni þess að ritgerðirnar eru búnar og þar með verknámi mínu bauð ég gamla genginu í smá hitting í Álfatúninu. Ótrúlega gaman að hitta fólkið aftur. Það komu svo gott sme allir en þó voru sumer sem komust ekki. Ég er t.d. alveg brjáluð út í hann Sigmund Einar. Hann kemur til landsins með kærustuna en gerir svo ekkert annað en að spila golf of vinna einhvern íslandsmeistaratitil, fer svo bara aftur út án þess að kveðja kóng eða prest! Halla Malla! Ingvar mætti með litlu snúlluna sína, það sem hún er sæt. Hlakka til að setja inn myndirnar og þá sjáiði hvað hún er endalaust falleg.

Laugardeginu var svo eytt með Pöllu Pipar. Við fórum í ljós...... sama sagan, Tommi Tómatur steig út úr bekknum.skil ekki afhverju ég er að þessu. Við fórum svo í Kringluna og keyptum outfit fyrir kvöldið. Pallan fann sér leðurjakka sem hún bara VARÐ að kaupa. Hann var ekkert svo dýr, 15.000 til 17.000 þúsund, verðið fór eftir því við hvern hún var að tala ;) Um kvöldið var afmælispartý hjá henni Camillu. Þeir sem vilja komast heim til hennar munið bara vinstri - vinstri - hægri ;) Þar var nú tekið á því, horft á menningarnætur flugelda sýningu í sjónvaroinu, blásið sápukúlur og ruglað eins og maður fengu borgað fyrir því. Svo var ahldið í kveðjupartý Náttúruprinsins í Vesturbrúninni. Enn og aftur komst ég að því að það er lífshættulegt að dansa við drenginn. Ég er meira að segja með sannanir fyrir því. Ég tók myndir af honum og Camillu i sveiflu og stelpugreyið lá bara í gólfinu. STÓRHÆTTULEGT. Sverrir fékk svo loksins að sjá myndbandið af sveiflunni á Króknum en ég er hrædd um að það hafi ekki staðist væntingar ;) Eftir þetta var haldið niður í bæ. Þar átti nú aldeilis að taka á því, þar sem ég hef ekki djammað í miðborg Reykjavíkur í að verða ár!!! En nei, það var sko ekki tekið á neinu! Annaðhvort er ég orðin dreifbýlistútta með meiru eða ellismellur því ég þekkti ekki sálu og var svo langelst á svæðinu. Ég hitti nú samt engan annan en Jack Sparrow! Ef ég hefði ekki verið svona miður mín út af fyrrgreindum ástæðum þá hefði ég ráðist á kauða! Pálína var nú ekki eins hrifin af dúddanum og ég ;)

Nú er ég stödd í frábæru yriflæti í Fákaleiru 8c á Höfn. Hér ætla ég að vera í tæpa viku og láta stjana við mig eins og alltaf J

Að lokum vil ég spyrja að einu. Hvað á það að þýða að ég sé að fá um og yfir 40 heimsóknir á síðuna á dag en það kvittar ENGINN???? Mér finnst þetta ekki sniðugt ;)

Over and out Sandra


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 14:58:17 / sandra

Reykjavík

Jæja nú er það bara Reykjavík city. Í tilefni þess að ég kláraði aðra af tveim ritgerðum vikunnar í gær ákváðum við systur að skella okkur í Bláa lónið og á kvikmyndahús á eftir. Það var alltaf eitthvað við Pirates of the Carrabien the black pearl sem fór í taugarnar á mér. Hvernig í ósköpunum fór Keira að því að velja Orlando Bloom fram yfir Jack Sparrow a.k.a. Jonny Depp? Ekki misskilja mig, Legolas er ástin í lífi mínu (ein af mörgum) en JONNY DEPP!!! Við skulum orða það þannig að ég varð ekki fyrir vonbrygðum með Deads mans chest ;) Ég hugsa að af öllum þeim mönnum sem ég ætla að giftast þá gæti enginn haldið mér frá Jonny Depp. Ég hugsa meira að segja að Fúsi, tröllið mitt yrði að víka.... :P

Annars er það að frétta að ég hef loksins lokið starfi mínu á Fosshótel Áningu. Þetta var ansi strembið á köflum en flest dýrin í skóginum voru vinir í lokin. Svo vann ég í snilldar veislu hjá Gunnsó the greatest. Þvílíktur stemmari. Alltaf gaman að vinna hjá fólki sem veit nákvæmlega hvernig á að fá það besta út úr starfsfólkinu sínu. Það var svona smá Broadway fílingur þarna og þótt ótrúlegt sé þá var það bara gaman ;)

Mrs. Jack Sparrow

Hey! Hver horfði á Kóngur um stund á mánudaginn? Reynir frændi, rugludallur með meiru var aðalmaður þáttarins. Hann var nú alltaf uppáhaldsfrændinn hér í denn þegar maður dvaldist sumarlangt í Miðsitju.

Um daginn vaknaði ég við símhringingu. “Hæ! Þett’er Anna!” ég fór næstum því að gráta við að heyra í orminum mínum. Ég sakna þeirra meira en allt. Það komst nú ekkert annað að hjá henni en að “það er svo heitt”. Það var meira að segja ekkert gaman hjá henni því það “var svo heitt” ;) Við hér á Frónni könnumst nú ekki við þetta vandamál :P

Jæja untill next time

En nú er það sem sagt Reykjavík city og ritgerðir og meiri ritgerðir. Ég hitti samt Pöllu Pipar í fyrradag og við tókum þá ákvörðun að nú væri fullt af sætum strákum að hefja nám í ferðamáladeild Hólaskóla. Þeirri ákvörðun verður ekki haggað ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 20:59:55 / sandra

Austari áin

Hvað haldiði að Sandran hafi gert í dag? Ég sigraðist á mínum stærsta ótta!!! Hversu margir hafa gert það? Þannig er mál með vexti að Áning fór í rafting í dag og ekki bara hvar sem er heldur í Austari ánna. Ég svaf nákvæmlega ekkert síðustu nótt og skalf svo af stressi í morgun. Ég sagði engum frá þessu því ég var nokkuð viss um að ég mundi beila á síðustu stundu en ég koms sjálfri mér svo sannarlega á óvart með því að gera það ekki. Þegar við komum niðureftir þá héldu hnén mér ekki uppi, það var gjörsamlega enginn kraftur í fótunum á mér, ég var viss um að ég mundi deyja! Öll myndböndin sem maður er búinn að sjá úr "Græna herberginu" þar sem bátarnir fara í marga hringi og sögurnar um að maður bara sogist niður og geti ekkert gert nema drukknað. Samt var þetta svo skrítið að um leið og ég settist í bátinn var allt í lagi. Stressið og hræðslan hurfu og spennan tók við. Mér leið svo miklu betur við það að Anup var guidinn í mínum bát. Hann er náttla frábær og bestur og skemmtilegastur (muniði eftir ritgerðinni minni um hann fyrir ári síðan þegar ég fór í vestari ánna ;) ) Ég flaug nokkrum sinnum út úr bátnum og festist undir honum og vitiði hvað? ÉG ER LIFANDI!!! ég veit ekki hvort þið getið ímyndað ykkur hvað þetta er mikill sigur fyrir mig. Þetta er það hræðilegasta sem ég veit, kalt gruggugt vatn þar sem þú hefur varla nokkra stjórn á hlutunum. Kannski getur Sjöfn skilið mig, því hún er með svipaða fóbíu nema gagnvart köngulóm.

Ég er bara ótrúlega stolt af sjálfri mér og næ mér hreinlega ekki niður á jörðina :D

Sandra yfir-raftari...!


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 11:32:06 / sandra

hellu

Í síðustu viku ákváðu við Sabina, Julia, David og Ida að fara í roadtrip á Mývatn og Ásbyrgi. Við ætluðum að leggja af stað á sunnudagskvöldi og gista á Húsavík. Nema hvað klukkan 17 á sunnudaginn hringir kallinn frá bílaleigunni og segist ekki eiga bíl fyrir okkur. Nú þá var bara ekkert annað í stöðunni en að leggjast í þunglyndi. Haldiði ekki að hann Friðgeir bjalli þá í vinkonu sína og bjóði henni fara (fram og til baka) á Akureyri um kvöldið. Það þurfti sko ekki að bjóða mér það oftar en einu sinni. Dana frænka bjargaði mér um gistingu og þegar ég kom þangað sátu hátíðargestir í stofunni að sumbli. Ég fékk næstum áfall þegar ég sá hann Karl Sigurð með bjór í hönd! ÞETTA ER LITLI FRÆNDI MINN!  ég geri mér grein fyrir að hann er útskrifaður rafvirki og miklu stærri en ég EN SAMT. Ég fékk eiginlega stærra áfall þegar ég áttaði mig á því að ég væri orðin svona gömul! Stuttu seinna fór ég aftur niður í bæ og hitti það stórvin minn hann Fritz aftur. Eins og það hafi ekki verið nóg áfall að sjá hann Kalla drekka þá áttaði ég mig á því að ég væri bara með þeim eldri í bænum. Við erum að tala um að bærinn var fullur af SMÁBÖRNUM! Halla malla! Ég hitti nú hann Ragga fyrir utan Amor en hann vildi nú meina að það væra ekki hægt að tala við mann svona edrú. Ég vildi nú meina að hann vissi ekkert um það hvort það væri hægt að ræða við mig þegar ég er full! Það veit það bara enginn ;) Saga birtist líka allt í einu inni á Amor. Rúsínan í pylsuendanum var samt að svertinginn hún Pálína var á svæðinu. jiii dúdda mía hvað það var gaman að sjá hana. Á Skómó ballinu missti Palla sig í dirty dancing múfinu... lét bara annan hvern strákinn henda sér upp í loftið :P á sunnudeginum var svo brunað on the Hook aftur. Mér leist nú ekkert á að láta rónana keyra heim svo ég tók það starf að mér (eins og svo oft áður) og ég get svo sagt ykkur það að ég hefði alveg eins getað verið ein í bílnum, það var ekki sagt orð alla leiðina. Við vorum ekki komin út að Þelamörk þegar drengirnir voru sofnaðir. Friðgeir vildi nú meina að hann hefði ekki sofnað heldur yrði hann bara að þegja til að æla ekki ;)

Í fyrrakvöld fóru við Ánignarliðið út í Drangey. Það var frábært, geggjað veður og allt. Þreytan var samt farin að segja til sín eftir alla vinnuna síðustu vikur og ég svaf alla leiðina heim á öxlinni hennar Tótlu, vona bara að hún hafi ekki hlotið varanlegan skaða af því :P

Nú er Kjartan voffi kominn á bílaspítala, bremsurnar eru farnar og ég fæ hann ekkert fyrr en á föstudaginn. Það má orða það þannig að ég varð nett pirruð að heyra þetta en við þessu er víst ekkert að gera nema taka vel á móti honum þegar hann kemur heim.

Myndir frá Akureyri eru http://www.sandydandy.smugmug.com/gallery/1695900/6/86837731 og frá Drangey http://sandydandy.smugmug.com/gallery/1648250/16/86836805 (það virkar ekkert þetta rusl, svo ég get ekki sagt svona "hér" heldur verður öll runan að koma)

blee í bili Sandra


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2006 09:11:12 / sandra

mrs Pepper

Jæja þá er vinnutörnin loksins að verða búin. Eftir nákvæmlega 7 daga þá er ég hætt. :D En í gær eftir vinnu skellti ég mér í sund. Heilsaði uppá Gogga kallinn og hékk svo í heita pottinum þangað til að ég varð orðin ein stór rúsína. Þegar ég kom heim henti ég mér í sófann hjá ömmu og horfði á eina bíómynd eða svo. Þar var einn af aðalleikurunum enginn annar en Berry Pepper. HUGSIÐI YKKUR... það er ekki meira en ár síðan ég sá hann í eigin persónu í Bláa Lóninu. Jiii dúdda mía! Ef ég hefði asnast til að vera ekki svona mikill íslendingur og talað við dúddann þá væri maður kannski bara mrs Pepper núna. Rauður dregill, flottir kjólar, fullkominn karlmaður, fullt af flottum fötum.... endalaus hamingja...

jæja best að geyma dagdraumana aðeins og halda áfram að útskýra fyrir brjáluðum þjóðverjum að ég get ekkert að því gert þó að lyftan sé biluð... viðgerðamaðurinn ER Á LEIÐINNI!!!!

Sandra ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 09:31:14 / sandra

Martröð

Ég vaknaði alveg brjáluð í morgun. Mig dreymdi að ég fengi ekki íbúðina mína á Hólum næsta vetur. Það var einhver kall að koma í skólann og hann á  ÁTTA börn og þurfti þess vegna MÍNA íbúð líka. Hann þurfti sem sagt TVÆR íbúðir. Ég varð alveg brjáluð, þetta var sko bara plebba skóli og ég ætlaði bara að hætta!!! Ég er eiginlega enn að ná mér niður á jörðina og átta mig á að þetta var draumur, samt eru næstum tveir og hálfur tími síðan ég vaknaði ;)

Ég varð nú frekar fúl þegar ég las mbl í gær. Þeir kjöftuðu frá því sem gerist í næsta þætti í rock Star, þ.e. í kvöld. Mér fannst þetta nú alveg fullkomlega óþarft. Mig langaði ekkert að vita að Skjár einn hefði sent út surprice myndband til Magna frá fjölskyldunni hans. Mig langaði enn síður að vita að köllunum í supernova finndist þetta svo sætt að þeir ákváðu að bjáða konuni hans og bróður út til hans. 

Þið verðið bara að fyrirgefa þennan pirring í mér, eins og ég sagði þá vaknaði ég í hörmulegu skapi.

Solla og Haffi eru að spá í að skella sér í sveitina um versló, það verður geðveikt. Ég er að sjálfsögðu að vinna eins og alltaf en það verður samt gaman að fá þau. Og rúsínan í pylsuendanum! PALLAN ER KOMIN HEIM!  Hún verður samt í Reykjavík þangað til ég fer í bæinn en þá fer hún norður svo við hittumst ekkert fyrr en skólinn byrjar EN SAMT. Við getum þó allavega hringst á núna ;)

over and out Sandurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 09:37:37 / sandra

Víkingur...!!!

Jæja þá var sko tekið á því í gær. Ingvar og Víkingarnir voru hér á hótelinu í nótt. Þeir voru bara í djammferð, fóru í rafting og eitthvað fleira. Það var geðvevikt stuð og ég stóð við gefin loforð um að draga allar sætu stelpurnar á Áningu á djammið með þeim. ;) Ég verð nú að viðurkenna að ég var komin í náttfötin og allt og alls ekki að nenna út þegar eitthvað sagði mér að hætta þessum aumingjaskap og drullast út. Maður er bara ungur einu sinni og getur sofið þegar maður verður gamall eins og hún Sabina segir. :haha: Það var svo ótrúlega gaman að hitta Ingvar.... geriði ykkur grein fyrir því að ég er að vera búin að búa hér í ár og hann er sá eini af gamla góða vinahópnum sem hefur komið í heimsókn!! HVAÐ Á ÞAÐ AÐ ÞÝÐA??? :P Hjördís kom líka og svo er Donni í Víking líka þannig að ég sé sko alls ekki eftir því að hafa hundskast úr náttfötunum og í djammgallann. Athugið að þetta er annað djammið mitt í röð þar sem ég hef EKKI drukkið magic en það er samt gaman! halla malla... kannski er ég bara svona geðveik eftir allt saman ;) Hinsvegar hefur magicinn verið drukkinn stíft daginn eftir í vinnunni.

Myndirnar koma vonandi inn seinna í dag... og Lilla, það fer sko ALLT á netið ;)

ciao Sandra

p to the s. Endilega KVITTIÐI!!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 10:09:04 / sandra

Sigurrós

Í gær stakk ég upp á því við sænskustelpurnar hér á hótelinu að við færum í sund þegar ég er búin að vinna. Einhvernveginn endaði sú sundferð á túni við Háls í Öxnadalnum á Sigurrósar tónleikum. Ég verð nú bara að viðurkenna það að þetta var heilmikil upplifun. Ég er víst ekki meiri íslendingur en svo að ég hef aldrei farið á tónleika með þeim áður. Auðvitað þekkti maður samt lögin. Ég hitti Heiðrúnu skvísu (í fína cintamani vestinu sínu) og Guðrúnu Helgad. kennara, svo veit ég að Ingvar var þarna en það var bara svo ótrúlega margt fólk þarna að ég hitti hann ekki. Enda kemur kappinn hingað á Áningu í kvöld svo ég var bara ekkert að stressa mig á að finna hann. Það var líka fullt af selebum á tónleikunum. Sem dæmi má nefna Andra Snæ... ég missti næstum legvatnið þegar ég sá hann.... ;) Við Hóladömurnar erum náttla flestar búnar að vera með hann á heilanum síðan við fórum á fund með honum í vor :haha:

Ég set myndir frá gærkvöldinu inn við fyrsta tækifæri. Þið verðið að fyrirgefa ef þær eru mjög artí, stemmningin var bara þannig í gær :P

Sandurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 09:40:12 / sandra

hola

YESSSS!!! Ég er BÚIN að skila ritgerðinni sem átti að skila í dag. vúhúúú! Svíf bara á bleiku skýi ;)

Í gær leyfði Tótla elskan mér að fá frí fram að hádegi. Ég notaði tímann og skellti snjóhvíta kroppnum mínum í ljós. Nema hvað út úr bekknum steig ekki brún og fín stúlka heldur Karfi Tómatsson!!! Ég barnn svo ótrúlega mikið á bakinu að ég svaf nánast ekki neitt. Skemmtilegt. Ég heyrði nefnilega í Pöllu pipar og mér skilst að þau séu ekkert svakalega hvít.... ég ætlaði mér ekki að verða líkið hjá svertingjunum þegar þau koma heim en sennilega verð ég bara Karfinn hjá svertingjunum :haha:

blee í bili Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 09:10:39 / sandra

Doglas Wilson

Haldiðið ekki að hún Saga hafi óvænt komið í heimsókn í gær. Frábært að fá hana í heimsókn, hún gisti og allt :) Þá þýddi náttla ekkert að standa í einhverjum rólegheitum. Eftir að ég var búin að vinna þá fórum við og fengum okkur að borða á Ólafshúsi og brunuðum svo uppá Hóla og skoðuðum pleisið. Ég var nú ekki beinlínis sátt við að það býr einhver í íbúðinni minni þar núna. Hugsiðið ykkur... það er einhver að sofa í rúmminu mínu!!! ojjjjj!!! En það er víst ekkert við þessu að gera. Að sjálfsögðu var svo tekinn rúntur. Hreimur átti að vera með kassagítarinn á Ólafshúsi og svo Doglas Wilson á Kaffi Krók. Ég vissi að ég ætti að vita hvaða hljómsveit þetta var en ég bara kom henni ekki fyrir mig. Ég spurði alla en enginn vissi hver hún var. Ég hugsaði bara "djös sveitapakk" en mundi samt ekki sjálf hvaðan ég þekkti hljómsveitina. ;) Þegar við komum á Kaffi Krók þá kostaði litlar 1000 kr inn, við vorum nú ekki alveg á því að borga og snérum við, kemur þá ekki einhver gaukur og bara splæsir á gellurnar :haha: Svo var Gestur að vinna á barnum þannig að kvöldið lofaði strax góðu. Um leið og hljósveitin steig á svið fattaði ég hverjir þetta voru og það er ekki nema vona að það viti enginn hverjir þeir eru því ég held að þeir séu ekkert frægir... allavega ekki þannig. Muniði fyrir nokkrum árum þegar Áka tók þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna með Cable Guy á Akureyri? Þá tók líka þátt strákur frá Ak sem heitir Stebbi Jak. Það var svo mikill kraftur í honum að rafmagnið sló út í húsinu og ég veit ekki hvað og hvað. Sandran féll svoleiðis flöt fyrir dúddanum og elti hann á röndum um allan bæinn eftir þetta. Ég veit að Sóley man eftir þessi því hún lenti alltaf í því að fylgja mér ;) Allavega þessi umræddi Stebbi Jak er söngvarinn í Doglas Wilson!!! Halla Malla!!! Það er óhætt að segja að míns  hafi aðeins misst sig  á dansgólfinu :P Nú er ég ekki að meina að ég elski ekki sveitaböllin með Geira og Von og öllum þeim en vááá hvað það var gaman að fá svolitla rokksveit on the Hook. Ég dansaði svo ótrúlega mikið að það þarf sko enga líkamsrækt fyrr en á næsta ári takkfyrirgóðandag! Svo yfirgaf röddin mig þannig að héðan í frá verður bara táknmál á þessum bæ. Fritz mætti líka á svæðið og borgaði til baka dansinn sem hann skuldaði :P Þetta var alveg fullkomlega frábært djamm sem oft verður þegar maður á síst von á því :D

Jæja nú verður að halda áfram að vinna

Sandra rokkara sleikja


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 10:05:30 / sandra

Myndir

Ég var að setja inn síðustu myndirnar sem ég tók á gömlu myndavélina. Þær eru frá London og Thake That tónleikunum, og svo víkingahátíðinni miklu on the hook.

over and out Sandra


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 11:30:02 / sandra

Reykjavíkin

Jæja þá er maður búinn að heimsækja Reykjavíkina í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Leiðin í bæinn var nú skondin. Við Pálína fórum á drossíunni minni og Ísak, Árni Þóroddur og Tonía á þeirra bíl. Pálína tók sér það bessaleyfi að skíra drossíuna. Hann hefur aldrei fengið almennilegt nafn greyið, tímabili kallaðist hann Rauða eldingin og svo Litli Rauður en það er eitthvað svo kjánalegt. Pálína skírði kaggann sem sagt Kjartan Voffa. Gellan er náttla svo ástfangin af Kjartani að það nær engri átt.... og svo er þetta WW golf svo voffi var viðeigandi ;) Pabbi hjálpaði reyndar til með seinna nafnið. Ég efast ekki um að það hafi verið meira stuð hjá okkur skvísunum en í hinum bílnum, allavega voru þeir steingeldir þegar við tókum framúr þeim, ekki standandi partý eins og hjá okkur. Pálína er nú nokkuð grófur dj, ég held að við höfum ekki hlustað á heilt lag alla leiðinia í bæinn, gellan var bara á tökkunum. Okkur blöskraði reyndar heiftarlega þegar drengirnir brunuðu framúr okkur í göngunum og þeir biðu ekki einu sinni eftir okkur. Djös dónaskapur! Það var samt svo skrítið að kveðjast, við höfum gert svo mikið á stuttum tíma og kynnst ótrúlega vel en nú er allt búið, allavega í bili. Sakki og Palla koma aftur í haust en samt. Það má eiginlega segja að sumarið sé búið, þó það sé í raun bara hálfnað. Gamanið er allavega búið.

Í Reykjavíkinni eyddi ég ótrúlega mikið af pening... halla malla... það er nánast ekkert eftir. Og það versta er að ég veit ekkert hvert peningurinn fór! furðulegt að vera í Reykjavík og fara ekki í Drápuhlíðina og hitta ormana. Hafði einhvernveginn ekkert að gera þegar þau eru ekki hér. Þess vegna eyddi ég bara pening ;) Við mamma brunuðum svo á Selfoss og hittum Rögnu, Heiðar og stelpurnar en þau voru í bústað á því svæði. Ég fékk næstum áfall þegar ég  sá stelpurnar, Þær eru svo STÓRAR, ég fer nú bara að panta mér herbergi á elliheimili... jiii dúdda mía. Hlakka til að komast austur þegar ég hætti hér, alltaf svo þægilegt að vera í Fákaleirunni.

Svo hitti ég líka Sögu og Gunna, og fór svo á Reykholt og hitti Bifrastar gengið. Þegar ég kom þangað þá varð ég grautfúl út í sjálfa mig fyrir að þrjóskast til að hanga hér á Áningu. Maður á að vera með vinum sínum, ég meina Drífa, Marlous, Xabi, Seb (hinn), Johanna og Benji.... Það er svo góður andi þar. Nánast eins og að koma á Bifröst aftur. Well maður er alltaf vitur eftir á. Ekki það, Pallan hefur nú alveg staðið sig í skemmtanabransanum hingað til  ;) en nú er hún stungin af til útlanda.

Rosalega er Magni góður marr.... hann á alveg skilið að vera einn af 5 efstu í Rock Star.. persónulega finnst mér að gellan frá Afríku eigi að vinna þetta en Magni er drullu góður. Þetta er samt ekki þáttur sem maður horfir á einn... maður á að liggja í sófanum í Fellstúninu og kryfja málin :P

Nú er bara 2ja vikna vinnutörn og svo er sumarið svo gott sem búið. Ég fór á bókasafnið og náði í fullt af bókum til að lesa. Íslandssagan frá landnámi til okkar daga... helduru að maður verði ekki fróður eftir sumarið ;)

ciao Sandra


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 03:08:22 / sandra

Loksins Grettislaug

Þá er dagskránni lokið í bili. Allir að fara til Reykjavíkur á morgun og sumir áfram til Portúgals. Skil ekki hvað er spennindi við það... ekki eins og það sé eitthvað vont veður hér ;) Nú er það bara Sandra var ein í heiminum þangað til að verknáminu lýkur.

Í kvöld fórum við loksins í Grettislaug, og Binni TAKK FYRIR OKKUR! Það var rosalega fínt, laugin  passlega heit, góður félagsskapur, útrás fyrir holdlega fýsn :P sögustundir, ógeðis sögur af vinahópnum, brjálaðar vindkviður, kríur og síðast en ekki síst náttúruöskur frá náttúruprinsinum. Án gríns þá var þetta frábært :haha: Ég er búin að setja inn soldið af myndum frá þessari sundferð en þið verðið bara að fyrirgefa að stundum var ég bara að missa mig í listrænni tjáningu ;) (sem fyrr þá er þetta bara aftast í sumarið 2006)

jæja best að fara að koma sér í bælið

over and out Sandra


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 12:08:51 / sandra

Grillið

Það var voða gaman í grillinu í gær... Árni var í víga stuði og það kom bara hver sögu stundin á eftir annari. Fræddist mikið um erlendar nuddstofur og fleira ;) svo lá leiðin niður á Kaffi Krók og Ólafshús. Þar hittum við Auði skvísu. Að sjálfsögðu var stiginn nettur dans á gólfinu, hvort sem vilji var til eða ekki  :P  Myndir komnar inn á síðuna mína (bara aftast í sumarið 2006)

Ég hitti líka Stjána úr Kópavoginum. Stjáni sem var með Sollu í bekk og bjó í blokkinni minni. Hann sagði mér að hann hefði lent í slysinu þarna á landsmótinu. Greyið strákurinn var í frekar miklu rusli. Hann leit samt órtúlega vel út. Það er ótrúlegt hvað þetta fær miklu meira á mann þegar maður þekkir einhvern sem lenti í þessu.

kv.Sandra


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti